Útkall vegna ofeldunar á sviðahaus

Sex útköll voru á dælubíla slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins síðasta sólarhringinn. Þar af eitt vegna ofeldunar á sviðahaus og reyks af völdum þess. 

Síðasta sólarhring var 71 boðun á sjúkrabíla slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins og þar af voru 20 forgangsflutningar að því er segir á Facebook-síðu slökkviliðsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert