Þýska flugfélagið Lufthansa mun hefja flug til Íslands á ný í byrjun næsta mánaðar en fyrst um sinn verður flogið tvisvar í viku frá Frankfurt og vikulega frá München.
Greint er frá áætlunum flugfélagsins á vef Túrista.
Flogið verður á þriðjudögum og föstudögum til og frá Frankfurt og á laugardögum til og frá München.