Myrti ömmu sína og móður með lásboga

Morðin áttu sér stað í borginni Takarazuka, nærri Osaka í …
Morðin áttu sér stað í borginni Takarazuka, nærri Osaka í vesturhluta Japan. AFP

Lögregla í Japan handtók í dag háskólanema, sem er grunaður um að hafa myrt tvo úr fjölskyldu sinni með lásboga. 

Lögreglan í borginni Takarazuka, nærri Osaka í vesturhluta Japan, handtók hinn 23 ára gamla Hideaki Nozu, á vettvangi. Kona á fimmtugsaldri og önnur á áttræðisaldri eru látnar, en tveir aðrir úr fjölskyldunni voru fluttir slasaðir á sjúkrahús. 

Samkvæmt tilkynningu frá lögreglu játaði Nozu sök og sagðist hafa drepið fjölskyldumeðlimi sína. Talið er að hinar látnu séu móðir og amma Nozu. 

Hvað bjó að baki morðunum er óvíst að svo stöddu, en glæpir af þessu tagi eru einstaklega sjaldgæfir í Japan og þar er strangt eftirlit með vopnavörslu borgara.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert