Framdyr strætisvagna á höfuðborgarsvæðinu verða allar opnaðar á nýjan leik eftir helgi, mánudaginn 8. júní. Svæði inn í strætisvögnum verður því ekki lengur skipt í tvennt.
Engar fjöldatakmarkanir eða fjarlægðarmörk verða í gildi um borð í Strætó. Hins vegar eru fremstu, stöku sætin um borð í vögnunum sérstaklega ætluð þeim farþegum sem kjósa að halda frekari fjarlægð við aðra farþega.
Þessi útfærsla er samkvæmt nýjum leiðbeiningum sóttvarnalæknis og heilbrigðisyfirvalda að því er segir í tilkynningu frá Strætó.