Þung umferð út úr bænum

Hér má sjá hvernig Breiðholtsbrautin lítur út þessa stundina en …
Hér má sjá hvernig Breiðholtsbrautin lítur út þessa stundina en ökumaður sem mbl.is ræddi við sagði að allt hafi verið „stopp“ nokkra stund. mbl.is/Árni Sæberg

Umferð er nokkuð þung á helstu stofnleiðum sem leiða út úr Reykjavík þennan eftirmiðdaginn, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Hún hefur þó gengið áfallalaust fyrir sig hingað til. 

Lögreglan hvetur ökumenn til að sýna þolinmæði í umferðarþunganum en ljóst er að þó nokkrir ætla út úr borginni þessa helgina. Umferðin er svipað þung á öllum stofnleiðum sem leiða út úr Reykjavík.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert