Gagnvirk sýning um borgarlínu opnar í Ráðhúsinu

Sýningin Næsta stopp opnar í Ráðhúsi Reykjavíkur í dag.
Sýningin Næsta stopp opnar í Ráðhúsi Reykjavíkur í dag. Ljósmynd/Aðsend

Framtíðaráform ríkis og sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu um nýtt samgöngunet verða kynnt á sýningunni Næsta stopp sem verður opnuð í Ráðhúsi Reykjavíkur klukkan eitt í dag. Sýningin er hluti af Hönnunarmars 2020.

Sýningin Næsta stopp mun gera nýju samgönguneti borgarlínu, Strætó, hjólastígum og deililausna skil sem og sýna hvernig Strætó og borgarlína koma til með að virka saman. Upplýsingum verður miðlað á skilmerkilegan hátt og er sýningin sögð tilvalinn viðburður fyrir alla fjölskylduna. Þetta kemur fram í tilkynningu.

Borgarlínan er nýtt samgöngukerfi almenningsvagna sem á að tengja allt höfuðborgarsvæðið saman með hröðum og tíðum ferðum. Samhliða verður þróað nýtt leiðanet almenningssamgangna á svæðinu sem mun tengjast borgarlínu.

Borgarlínuvagnarnir verða drifnir innlendum vistvænum orkugjöfum og munu því styðja við þróun höfuðborgarsvæðisins að kolefnishlutlausu borgarsamfélagi og bættri lýðheilsu.

Borgarlínustöðvarnar verða lykilpunktar nýja samgöngunetsins og í kringum þær á að skapa aðstæður fyrir margvíslega verslun og þjónustu. Þar verður góð aðstaða fyrir hjól og hvers konar deilifarartæki sem auðvelda fólki síðasta spölinn að borgarlínustöðinni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert