10 daga Menningarnótt

Frá Menningarnótt í fyrra.
Frá Menningarnótt í fyrra. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Menningarnótt verður með breyttu sniði í ár til þess að stefna ekki of miklum mannfjölda saman í samræmi við tilmæli almannavarna vegna kórónuveirunnar. Hátíðin dreifist því yfir 10 daga og fer fram dagana 13.-23. ágúst.

Frá þessu greinir Reykjavíkurborg, en auglýst er eftir frumlegum hugmyndum til að fylla inn í nýstárlegt viðburðalandslag Menningarnætur 2020.

„Veittir verða styrkir á bilinu 100.000-500.000 krónur. Listafólk, íbúar, rekstraraðilar, félagasamtök og allir áhugasamir geta sótt um styrki. Allt er þetta gert til að lífga upp á miðborgina í nafni menningarnætur, þessari þátttökuhátíð sem borgarbúar skapa og upplifa saman,“ segir í tilkynningu borgarinnar. 

Bent er á, að hægt sé að sækja um í Menningarnæturpottinn til 3. júlí. Menningarnæturpotturinn er samstarfsverkefni Reykjavíkurborgar og Landsbankans. 

Nánar um Menningarnótt.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert