Guðni með 91% atkvæða

Eliza Reid og Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands verða að …
Eliza Reid og Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands verða að öllum líkindum áfram á Bessastöðum næstu fjögur árin. mbl.is/Kristinn Magnússon

Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, er með 91% atkvæða þegar fyrstu tölur hafa verið birtar úr öllum sex kjördæmum landsins. Guðmundur Franklín Jónsson, mótframbjóðandi hans, er með 9% atkvæða.

Ólafur Þ. Harðarson stjórnmálafræðingur sagði á kosningavöku RÚV fyrir skömmu að ljóst væri að það stefndi í yfirburðasigur sitjandi forseta.

Guðmundur Franklín Jónsson á kjörstað í morgun. Hann hefur óskað …
Guðmundur Franklín Jónsson á kjörstað í morgun. Hann hefur óskað Guðna til hamingju með sigurinn en vonast til þess að hann sjálfur hljóti meiri stuðning en fyrstu tölur gefa til kynna. mbl.is/Kristinn Magnússon

 



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert