Björgunarsveitir kallaðar út í Reykjadal

Konan sem slasaðist var gangandi í Reykjadal.
Konan sem slasaðist var gangandi í Reykjadal.

Björgunarsveitir í Árnessýslu voru kallaðar út um klukkan 15.30 í dag vegna konu sem slasaðist í Reykjadal.

Konan slasaðist á fæti um tvo kílómetra frá bílastæðinu við Reykjadal eftir því sem fram kemur í tilkynningu. 

Björgunarsveitarfólk ásamt sjúkraflutningamönnum komu á vettvang um klukkan 16 á sexhjólum og hlúa nú að konunni. Flytja þarf hana á sexhjólum niður dalinn að sjúkrabíl, en talið er að hún sé ökklabrotin. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert