Búast má við norðvestlægri átt á bilinu 3-8 m/s í dag og svo virðist sem sólin ætli að skína áfram glatt á stóran hluta landsins að því er fram kemur í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands.
„Stöku síðdegisskúrir munu láta á sér kræla á sunnanverðu landinu ef að líkum lætur, en að öðru leyti er ekki búist við úrkomu. Hitinn verður áþekkur því sem hann var í gær. Nokkuð víða 13 til 18 stig yfir daginn en svalara við norðurströndina þar sem loftið kemur beint af hafi.
Spáin fyrir morgundaginn er síðan svipuð og spáin í dag. Áttin áfram norðvestlæg, en eilítið ákveðnari vindur, á bilinu 5-10 m/s á morgun. Þokkalega bjart á landinu svona heilt yfir þó má búast við heldur fleiri skýjum á lofti en í dag.
Áfram líkur á stöku síðdegisskúrum á sunnanverðu landinu og hámarkshiti dagsins kringum 18 stigin,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings.
Vestan og norðvestan 3-8 m/s í dag, en 5-10 á morgun. Víða þurrt og bjart veður en stöku síðdegisskúrir á sunnanverðu landinu. Hiti 10 til 18 stig, hlýjast sunnan til.
Á miðvikudag:
Vestan og norðvestan 5-10 m/s. Víða bjartviðri en líkur á stöku síðdegisskúrum sunnan til á landinu. Hiti 10 til 17 stig.
Á fimmtudag:
Norðvestan 5-10 og bjartviðri sunnan- og vestanlands, en 8-13 og dálítil rigning um landið norðaustanvert. Hiti frá 7 stigum norðaustanlands, upp í 18 stig á Suðausturlandi.
Á föstudag:
Vestlæg átt 3-10 og skýjað vestanlands en léttir til um landið austanvert síðdegis. Hiti 10 til 17 stig, hlýjast á Suðausturlandi.
Á laugardag:
Suðvestan 5-10 og súld eða dálítil rigning á Suður- og Vesturlandi en bjart norðaustan- og austanlands. Hiti 10 til 19 stig, hlýjast á Austurlandi.
Á sunnudag og mánudag:
Suðlæg eða breytileg átt. Skýjað og lítilsháttar væta sunnan heiða en bjart með köflum á Norður- og Austurlandi með stöku skúrum síðdegis. Hiti 11 til 18 stig, hlýjast fyrir norðan og austan.