Bjóða út byggingu Kársnesskóla

Nýr Kársnesskóli mun rísa nærri Skólagerði.
Nýr Kársnesskóli mun rísa nærri Skólagerði. Ljósmynd/Kópavogur

Stefnt er á að bygging Kársnesskóla við Skólagerði verði boðin út í ágústmánuði. Byggingin verður reist úr KLT timbureiningum og verður auk þess Svansvottuð. Þar til húsa verða leik- og grunnskólanemendur á fyrsta stigi. Þetta kemur fram á vef Kópavogsbæjar. 

Framkvæmdaáætlun gerir ráð fyrir að verklok byggingarinnar verði í maí 2023, en nýr Kársnesskóli verður 5.750 fermetrar að flatarmáli. Þar til skólinn er risinn verða lausar skólastofur við Kársnesskóla nærri Vallargerði nýttar fyrir starfsemi skólans, en þær hafa verið í notkun undanfarin ár.

Verkfræðistofan Mannvit sá um heildarhönnun skólans að loknu útboði en Batteríið og Landslag ehf. voru í teyminu með Mannviti. Hönnunarstjóri hönnunarteymisins var Jón Ólafur Ólafsson arkitekt. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert