Flugfreyjur samþykktu kjarasamning

Félagsmenn í Flugfreyjufélagi Íslands hafa samþykkt kjarasamning sem gerður var við Icelandair. 

Atkvæðagreiðslunni lauk klukkan 12 í dag. 

Á kjörskrá voru 921. Atkvæði greiddu 812 eða 88,17%, að því er segir í tilkynningu. 

Já, sögðu 678 eða 83,50%. Nei, sögðu 109 eða 13,42%. Auðir seðlar voru 25 eða 3,08%.

„Stjórn og samninganefnd FFÍ fagna því að viðræðum sé lokið og þakkar félagsmönnum fyrir samstöðu og stuðning sem ríkt hefur meðal hópsins síðustu mánuði. Kjörsókn var mjög góð og sýnir það ábyrgð og áhuga félagsmanna á starfskjörum sínum og vinnuumhverfi,“ segir í tilkynningunni.

Samn­ing­ur­inn var kynnt­ur fyr­ir fé­lags­mönn­um fyr­ir viku á Hót­el Nordica á Suður­lands­braut. Hann er áþekk­ur þeim sem var und­ir­ritaður í síðasta mánuði en flug­freyj­ur felldu síðan í at­kvæðagreiðslu með 72,65% greiddra at­kvæða.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert