Vilja ekki að bransinn þurrkist út

Tilslakanir taka ekki gildi fyrr en 18. ágúst í stað …
Tilslakanir taka ekki gildi fyrr en 18. ágúst í stað 4. ágúst, sem kemur sér illa fyrir skemmtistaðaeigendur. mbl.is/Kristinn Magnússon

Rekstraraðilar skemmtistaðarins B5 íhuga nú viðræður við stjórnvöld varðandi mögulegan styrk vegna rekstrarumhverfis skemmtistaða og tekjutaps í kjölfar samkomutakmarkana vegna kórónuveirufaraldursins. 

„Það eru að koma kröfur um að eiga samtal við stjórnvöld til að fá alvöruaðstoð. Að við förum í alvörusamtal um hvað sé hægt að gera svo að bransinn þurrkist ekki út. Þannig að allir staðir fari ekki á andlitið og þurfi allir að byrja á nýjum kennitölum, sem við viljum ekki. Við viljum bara að þetta virki.“

Þetta segir Jónas Óli Jónasson, meðeigandi skemmtistaðarins B5 við Bankastræti, þar sem frestun á tilslökunum samkomutakmarkana muni óneitanlega hafa slæm áhrif á rekstrarumhverfi skemmtistaða, þar sem mest umferð er eftir miðnætti á kvöldin. Hann segir að auknar kröfur um stuðning frá ríkinu hafi komið fram í stéttinni.

„Þetta eru vonbrigði en það eru allir að reyna að gera sitt besta. Við skiljum það,“ segir Jónas Óli, í ljósi þess að tilslökunum hafi verið frestað um tvær vikur, eins og Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra hefur staðfest í samtali við mbl.is. Þá kom einnig fram á fundi almannavarna í dag að ekki væri útilokað að herða þyrfti aðgerðir.

„Staðurinn og skemmtistaðir almennt höndla bara visst margt fólk á hverjum klukkutíma. Bara það að lengja tímann hjá okkur gerir helling en eins og er er ekki heimilt að hafa opið á okkar háannatíma,“ segir hann. 

Tilslakanir samkomutakmarka taka gildi 18. ágúst að öllu óbreyttu, þar sem fjöldatakmarkanir verða rýmkaðar úr 500 í 1.000 og afgreiðslutími veitinga- og skemmtistaða frá kl. 23 til miðnættis. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert