Almannavarnarstig ekki hækkað

Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn.
Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn. mbl.is/Kristinn Magnússon

Almannavarnastig vegna útbreiðslu kórónuveirunnar hérlendis verður ekki hækkað að svo stöddu.

Þetta er niðurstaða fundar dómsmálaráðherra, ríkislögreglustjóra og allra lögreglustjóra í landinu sem lauk á öðrum tímanum í dag.

Breytist aðstæður verður staðan endurmetin, að því er segir á facebooksíðu almannavarna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert