Rauf mörk einangrunar vegna ölvunar

Lögreglan hafði í mörg horn að líta í nótt.
Lögreglan hafði í mörg horn að líta í nótt. mbl.is/Árni Sæberg

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var send að heimili í gær þar sem einn aðili átti að vera í einangrun vegna COVID-19. Sá var orðinn ölvaður og átti erfitt með að virða mörk einangrunar og aðrir íbúar voru orðnir úrræðalausir.

Aðilinn var því vistaður í fangageymslu þar til víman rennur af honum, að því er kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Í gærkvöldi barst lögreglunni tilkynning um mann með hnífa á heimili sínu. Fram kom í tilkynningunni að maðurinn væri í annarlegu ástandi. Er lögregla kom á vettvang kom í ljós að maðurinn átti við andleg veikindi að stríða og var ástand hans sökum þess. Lögreglan aðstoðaði manninn við að fá viðeigandi aðstoð.

Frá klukkan 17 í gær til klukkan fimm í nótt sinnti lögreglan 79 málum og fjórir gista fangageymslur.

Óboðnir gestir í íbúð og báti

Lögreglu barst tilkynning frá manni sem hefur hús til umráða í miðborginni. Sá kom að tveimur sem voru búnir að gera sig heimakomna í íbúðinni og verða þeir kærðir fyrir húsbrot.

Sambærilegt mál kom inn á borð til lögreglu skömmu síðar en þar kom eigandi í bát sinn sem er við Reykjavíkurhöfn, þar voru tveir búnir að koma sér fyrir. Þeir verða einnig kærðir fyrir húsbrot.

mbl.is/Eggert

Datt harkalega á reiðhjóli 

Lögreglu og sjúkraliði barst tilkynning um reiðhjólaslys í Hafnarfirði í gærkvöldi. Þar datt maður harkalega á reiðhjóli og þurfti að flytja hann á slysadeild til aðhlynningar.

Einn var handtekinn grunaður um fíkniefnamisferli í efri byggðum Reykjavíkur. Sá var vistaður í fangageymslu sökum málsins.

Einn var handtekinn í miðborginni sökum annarlegs ástands og er hann einnig grunaður um rúðubrot. Sá var vistaður í fangageymslu þar til víman rennur af honum.

Einn var handtekinn grunaður um líkamsárás í efri byggðum Reykjavíkur. Hann var vistaður í fangageymslu sökum málsins.

Lögreglunni hafa jafnframt borist fjölmargar hávaðakvartanir og nokkrar kvartanir sökum flugeldasprenginga.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert