Fluttur á sjúkrahús eftir alvarlegt slys

Frá Flateyri, sem stendur við Önundarfjörð.
Frá Flateyri, sem stendur við Önundarfjörð. mbl.is/Sigurður Bogi

Starfsmaður Orkubús Vestfjarða slasaðist alvarlega við vinnu í tengivirki Landsnets og Orkubúsins í Breiðadal um klukkan þrjú í dag. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landsneti. Maðurinn var fluttur á sjúkrahús.

mbl.is greindi frá því fyrr í dag að slysið hefði orðið.

Að því er segir í tilkynningunni voru starfsmenn Orkubúsins að vinna við búnað Landsnets í tengivirki Breiðdalslínu 1 þegar slysið varð, en ekki er hægt að segja til um orsakir þess að svo stöddu.

Vðbragðsáætlanir fyrirtækjanna tveggja hafi verið virkjaðar og hugur allra sé hjá þeim slasaða, fjölskyldu hans og samstarfsfólki.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert