Boða til upplýsingafundar aftur í dag

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir og Sigríður Björk Guðjónsdóttir ríkislögreglustjóri verða á …
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir og Sigríður Björk Guðjónsdóttir ríkislögreglustjóri verða á fundinum á eftir. mbl.is/Kristinn Magnússon

Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og embætti landlæknis hafa boðað til upplýsingafundar í dag klukkan 14:00, en þar munu Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir og Sigríður Björk Guðjónsdóttir ríkislögreglustjóri fara yfir stöðu mála varðandi framgang COVID-19-faraldursins hér á landi.

Kemur þessi fundur nú í kjölfar þess að smitum hefur fjölgað mikið á ný og hefur Þórólfur ásamt fleiri sérfræðingum talað um að þriðja bylgja faraldursins sé nú hafin. Síðasta sunnudag voru tvö greind smit. Á mánudaginn fjölgaði þeim lítið eitt og voru þá greind sex innanlandssmit. Á þriðjudaginn greindust 13 smit og á miðvikudaginn 19. Á fimmtudaginn var tala nýrra smita innanlands 21, en á föstudaginn hækkaði sú tala mikið og greindust þá 75 með smit.

Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn hjá almannavörnum, sagði í gær að til skoðunar væri að færa viðbúnað al­manna­varna af hættu­stigi og á neyðarstig á höfuðborg­ar­svæðinu í ljósi þess fjölda smita sem greinst hafa sólarhringinn á undan.

Þórólf­ur sagði á fund­in­um í gær að ekki væri búið að ákveða hvort eða hvernig herða ætti aðgerðir inn­an­lands í ljósi þeirra smita sem upp hafa komið síðustu daga. Sagði hann það munu ráðast næsta sólarhringinn, þannig að búast má við því að til tíðinda dragi á fundinum á eftir varðandi hver til­mæli hans verði til heil­brigðisráðherra um næstu skref.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert