Í dag mun ganga suðvestlæg eða breytileg átt 5 til 13 metrar á sekúndu og skúrir, en sums staðar él um landið norðanvert. Lengst af úrkomulítið austan til. Hiti 1 til 8 að deginum, hlýjast syðst. Þetta kemur fram í spá Veðurstofunnar.
Svipuðu veðri er spáð á morgun, þó lægir víða og gengur í norðaustan 10 til 18 með samfelldari úrkomu norðvestan til.
Fram kemur í hugleiðingum veðurfræðings að veðrið hefur róast töluvert eftir átök helgarinnar.
Á miðvikudag:
Norðlæg átt 8-15 og dálítil rigning S-til, en él fyrir norðan. Mun hægari um landið NA-vert. Hiti 0 til 5 stig, en í kringum frostmark fyrir norðan.
Á fimmtudag:
Norðlæg átt 5-10 m/s og dálitlar skúrir eða él N-lands, en víða léttskýjað um landið S-vert. Hiti 1 til 7 stig yfir daginn, mildast syðst.
Á föstudag:
Vaxandi suðaustanátt og fer að rigna S- og V-lands seinnipartinn, en bjart NA-til. Hlýnandi veður.
Á laugardag:
Suðlæg átt og rigning, en úrkomulítið á N- og A-landi. Hiti 7 til 12 stig.
Á sunnudag:
Útlit fyrir suðvestlæga eða breytilega átt og dálitlar skúrir, en rigningu austast. Hiti 4 til 9 stig.