Norðaustankaldi og slydduél í kvöld

Kort/Veðurstofa Íslands

Spáð er norðaustankalda og slydduéljum á Vestfjörðum og Ströndum með kvöldinu en hæglætisveðri annars staðar í dag og kvöld.

Á morgun er útlit fyrir suðlægar áttir og fer að rigna á Suðausturlandi. Annars víða skúrir en léttir til norðaustanlands. Breytilegt veður það sem eftir lifir vikunnar með vætu í flestum landshlutum. Milt veður að deginum en sums staða vægt frost að næturlagi að því er segir í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands.

Veðurspá fyrir næstu daga

Vestlæg eða breytileg átt, 3-8 m/s, en 8-13 með N-ströndinni. Dálitlar skúrir í flestum landshlutum, en norðlægari og slydduél NV til undir kvöld. Suðlæg átt, 3-10 m/s á morgun, en norðaustan 8-13 á Vestfjörðum. Rigning á SA-landi og skúrir V-til en annars úrkomulítið. Hiti 1 til 10 stig, hlýjast SA-lands.

Á þriðjudag:
Norðaustan 13-18 m/s NV til á landinu en annars austlæg átt, 8-15. Rigning í flestum landshlutum, jafn vel slydda á Vestfjörðum en úrkomulítið NA-lands. Hiti 1 til 9 stig, hlýjast á Suðausturlandi.

Á miðvikudag:
Austlæg eða breytileg átt, 8-15 m/s en 13-18 á annesjum nyrðra og víða talsverð rigning en úrkomulítið SV-lands. Snýst í suðvestanátt um kvöldið og rofar til. Hiti 3 til 10 stig, hlýjast á NA-landi.

Á fimmtudag:
Suðlægar áttir, strekkingur V-ast,en annars hægara. Skúrir víða um land en léttskýjað NA til. Hiti víða 2 til 7 stig.

Á föstudag:
Útlit fyrir hæga norðlæga átt og víða bjartviðri, en fremur svalt í veðri.

Á laugardag og sunnudag:
Líklega austanáttir með vætu víða um land og hægt hlýnandi veður.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert