Stefna að kynningu tillagna á morgun

Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra.
Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra. mbl.is/Kristinn Magnússon

Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra segist búast við því að kynntar verði á morgun tillögur ríkisstjórnarinnar varðandi lífskjarasamningana fyrir aðilum vinnumarkaðarins. 

Forysta ríkisstjórnarinnar og Samtaka atvinnulífsins fundaði í ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu í morgun og aftur síðdegis. Í morgun frestaði SA fyrirhugaðri atkvæðagreiðslu félagsmanna SA sem átti að hefjast á hádegi í dag um hvort segja ætti lífskjarasamningunum upp. 

Bjarni vildi ekki tjá sig um efni fundarins en segist búast við því að þær tillögur sem ræddar voru á honum verði kynntar aðilum vinnumarkaðarins á morgun. 

ASÍ og SA hefur und­an­farna daga greint á um þær for­send­ur sem liggja að baki lífs­kjara­samn­ingn­um og hvort þær séu brostn­ar eða ekki. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert