Hvaða reglur tóku gildi á miðnætti?

Frá sýnatöku vegna COVID-19.
Frá sýnatöku vegna COVID-19. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Á miðnætti tóku nýjar reglu­gerðir um tak­mark­an­ir á sam­komu­haldi og skóla­starfi sem kveða á um hert­ar aðgerðir til að sporna við út­breiðslu COVID-19 gildi. Þær gilda til og með 19. október næstkomandi. Hér má sjá um hvaða reglur ræðir:

  • Samkomur fleiri en 20 manns eru bannaðar, með nokkrum undantekningum sem verða útlistaðar hér að neðan. 
  • Líkamsræktarstöðvum er óheimilt að hafa opið. 
  • Krám, skemmtistöðum og spilasölum er einnig bannað að halda úti starfsemi.
  • Gest­ir á sund­stöðum mega að há­marki vera 50% af leyfi­leg­um fjölda sam­kvæmt starfs­leyfi.
  • Áfram gilda eins metra fjar­lægðarmörk.
  • Við aðstæður þar sem ómögulegt er að viðhafa eins metra fjarlægðarmörk er fólki skylt að nota and­lits­grím­u.
Nú verða landsmenn að bíða með ræktarferðina í að minnsta …
Nú verða landsmenn að bíða með ræktarferðina í að minnsta kosti tvær vikur. mbl.is/Kristinn Magnússon

Eft­ir­tald­ar eru und­anþágur frá 20 manna há­marki. Þar gild­ir sem ann­ars staðar að ef ekki er hægt að upp­fylla eins metra ná­lægðarreglu er skylt að nota and­lits­grímu:

  • Störf Alþing­is eru und­an­skil­in fjölda­tak­mörk­un­um.
  • Dóm­stól­ar þegar þeir fara með dómsvald sitt.
  • Viðbragðsaðilar, s.s. lög­regla, slökkvilið, björg­un­ar­sveit­ir og heil­brigðis­starfs­fólk, eru und­anþegnir fjölda­tak­mörk­un­um við störf sín.
  • Fjölda­tak­mörk við út­far­ir verða 50 manns.
  • Versl­un­um und­ir 1.000 fm að stærð verður heim­ilt að hleypa 100 ein­stak­ling­um inn í sama rými á hverj­um tíma og ein­um viðskipta­vini til viðbót­ar fyr­ir hverja 10 fm umfram 1.000 fm en þó aldrei fleiri en 200 viðskipta­vin­um í allt.
  • Sviðslist­ir: Heim­ilt verður að halda viðburði þar sem 100 manns koma sam­an í afmörkuðu hólfi. Sæti skulu vera núm­eruð, nafn gesta í hverju sæti skráð og öll­um áhorf­end­um ber að nota and­lits­grímu.
  • Í fram­halds- og há­skól­um verður miðað við 30 manns.
Víða hefur grímuskylda verið tekin upp í framhaldsskólum en það …
Víða hefur grímuskylda verið tekin upp í framhaldsskólum en það er á borði hvers skóla fyrir sig að ákveða slíkt. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Aðrar undantekningar:

  • Keppnisíþrótt­ir með snert­ingu verða leyfðar með há­marks­fjölda 50 ein­stak­linga að upp­fyllt­um til­tekn­um skil­yrðum.
  • Áhorf­end­ur á íþrótta­leikj­um: Óheim­ilt er að hafa áhorf­end­ur á íþróttaviðburðum inn­an­dyra. Ut­an­dyra er heim­ilt að hafa áhorf­end­ur, allt að 100 í hverju rými, að því gefnu að gest­ir sitji í núm­eruðum sæti sem skráð eru á nafn og noti and­lits­grímu.

Reglugerð um takmörkun á samkomum vegna farsóttar
Reglugerð um takmörkun á skólastarfi vegna farsóttar

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert