Afkastagetan aukin um 50%

Hellisheiðarvirkjun.
Hellisheiðarvirkjun. Ljósmynd Veitur

Framkvæmdum við stækkun varmastöðvar við Hellisheiðarvirkjun, sem framleiðir heitt vatn fyrir íbúa og fyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu, er lokið. Við það jókst afkastageta hennar úr 600 l/s í 925 l/s, eða um ríflega 50%. Heildarkostnaður við stækkunina nemur um 1250 milljónum króna.

Stækkun þessi var upphaflega ráðgerð árið 2023 en var flýtt sökum talsverðrar aukningar á notkun heits vatns á höfuðborgarsvæðinu umfram langtímaspár.  Helstu ástæður aukningarinnar eru fjölgun íbúa og ferðamanna, mikil uppbygging húsnæðis, þ.m.t. hótelbygginga sem nota mikið heitt vatn og ekki síst, meiri notkun á hvern íbúa sem ekki var fyrirséð þegar spár voru gerðar. Þessi þróun hefur valdið álagi á heitavatnsborholur Veitna í Reykjavík og í Mosfellsbæ, einna helst þegar mjög kalt er í veðri til lengri tíma að því er segir í tilkynningu.

Heita vatnið sem kemur til notenda frá virkjunum Orku Náttúrunnar á Hellisheiði og á Nesjavöllum er upphitað grunnvatn. Stækkun varmastöðvarinnar fól því í sér að bora þrjár kaldavatnsholur í Engidal auk þess að bætt var við einu varmaskiptapari og höfuðdælu.

Með aukinni framleiðslugetu virkjana á heitu vatni gefst kostur á því að taka hverfi í borginni af borholuvatni, sem er takmörkuð auðlind, og setja á vatn frá virkjunum. Veitur hafa undanfarið staðið í framkvæmdum með það fyrir augum að færa Árbæ, Ártúnsholt og síðar Sundahverfi af borholuvatni yfir á vatn frá virkjunum til frambúðar.

Arna Pálsdóttir, verkefnastjóri nýsköpunarverkefna hjá Orkuveitu Reykjavíkur.
Arna Pálsdóttir, verkefnastjóri nýsköpunarverkefna hjá Orkuveitu Reykjavíkur. Ljósmynd aðsend

„Eldri hverfi Reykjavíkur fá vatn úr borholum Veitna. Færsla Árbæjar, Ártúnsholts og síðar Sundahverfis á vatn frá virkjunum gefur okkur rými til að mæta aukinni þörf í eldri hverfunum þar sem mikil uppbygging hefur verið í formi þéttingar byggðar. Stækkun varmastöðvarinnar er því eitt púsl í það stóra verkefni að sjá höfuðborgarsvæðinu fyrir heitu vatni til húshitunar, bað- og sundferða og iðnaðar til langrar framtíðar og á sama tíma nýta með ábyrgum hætti þá dýrmætu auðlind sem heita vatnið okkar er,“ segir Arna Pálsdóttir, verkefnastjóri nýsköpunarverkefna hjá Orkuveitu Reykjavíkur, móðurfélagi ON og Veitna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert