Fjórir á gjörgæslu og tveir í öndunarvél

Ljósmynd/Landspítali

Alls eru 27 sjúk­ling­ar nú inniliggj­andi á Land­spít­al­an­um vegna Covid-19. Þeir hafa alls verið 61 frá upp­hafi þriðju bylgju far­ald­urs­ins. Þar af eru fjórir á gjör­gæslu og tveir í önd­un­ar­vél.

Þetta kemur fram í tilkynningu.

Þar seg­ir enn frem­ur, að nú séu 1.222 sjúk­ling­ar í eft­ir­liti Covid-19-göngu­deild­ar. Þá eru 52 starfs­menn í sótt­kví A og 20 starfs­menn eru í ein­angr­un.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert