134 sjúkraflutningar – 26 vegna Covid

Sjúkraflutningar vegna Covid-19 eru tímafrekir en á hverjum degi fer …
Sjúkraflutningar vegna Covid-19 eru tímafrekir en á hverjum degi fer slökkvilið höfuðborgarsvæðisins í slíka flutninga. Facebook-síða SHS

Enn og aftur er slökkvilið höfuðborgarsvæðisins að fara langt yfir 100 sjúkraflutninga á sólarhring. Síðasta sólarhringinn voru þeir 134 talsins, þar af voru 25 forgangsflutningar og 26 vegna Covid sjúklinga.

Dælubílar slökkviliðsins fóru í þrjú útköll síðasta sólarhringinn að því er segir á Facebook-síðu slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert