Lokar Sporthúsinu vegna óánægju

Þröstur Jón Sigurðsson, eigandi Sporthússins.
Þröstur Jón Sigurðsson, eigandi Sporthússins. mbl.is/Ómar Óskarsson

Þröstur Jón Sigurðsson, eigandi Sporthússins, hefur ákveðið að loka líkamsræktarstöðinni tímabundið. 

Þröstur greindi frá þessu á heimasíðu Sporthússins fyrr í dag. 

„Mikil og almenn óánægja er í samfélaginu yfir því að Sporthúsið skuli hafa nýtt þá heimild sem kveðið er á um í reglugerð heilbrigðisráðherra og opnað fyrir hóptíma, en ekki farið að tilmælum sóttvarnalæknis, þrátt fyrir að í minnisblaði hans til ráðherra hafi verið lagt til að tilteknar íþróttir gætu hafið starf með takmörkunum, svo sem CrossFit og jóga. Í ljósi þessa tel ég að ekki hafi verið rétt að svo stöddu að opna Sporthúsið, CrossFit, BootCamp, SuperForm og aðra starfsemi hjá okkur sem kennd er í hópum,“ segir Þröstur. 

„Vegna skilaboða sóttvarnalæknis gegnum fjölmiðla og þeirrar miklu sundrungar sem virðist vera í samfélaginu vegna opnunar líkamsræktarstöðva hef ég ákveðið að axla ábyrgð og loka starfsemi okkar aftur, í von um að það sé rétt ákvörðun fyrir almannahag,“ segir Þröstur, sem biðst jafnfram afsökunar á þeim óþægindum sem lokunin kann að valda. 

Þá bendir Þröstur einnig á að eftir hans bestu vitund hafi ekkert kórónuveirusmit verið rakið til Sporthússins. 

„Mig langar að lokum að benda á það að þrátt fyrir gríðarlegan fjölda heimsókna í Sporthúsið (um 1 milljón heimsókna), frá því að Covid-19 hófst, þá hefur eftir minni bestu vitund ekkert smit verið rakið til okkar. Öll umræða um líkamsræktarstöðvar sem gróðrarstíu Covid-19 á því að mínu mati ekki við um okkar starfsemi, enda höfum við og viðskiptavinir okkar lagt gríðarlega hart að okkur við að gæta að ýtrustu sóttvörnum,“ segir Þröstur. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert