31 Covid-sjúkraflutningur

Kona var flutt á Landspítalann vegna gruns um reykeitrun.
Kona var flutt á Landspítalann vegna gruns um reykeitrun. mbl.is/Árni Sæberg

Síðasta sólarhringinn fóru sjúkrabílar slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins í 127 verkefni, þar af var 21 með forgangi og 31 flutningur vegna Covid-19.

Eitt útkall barst vegna eldsvoða en eldur kom upp í einbýlishúsi við Stararima í Grafarvogi á níunda tímanum í gærkvöldi. Allt tiltækt slökkvilið var sent á vettvang ásamt þremur sjúkrabílum. Kona var flutt á sjúkrahús til skoðunar vegna hugsanlegrar reykeitrunar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert