„Afstaða stjórnvalda er ranglát“

Bjarni Óskarsson.
Bjarni Óskarsson. mbl.is/Sigurður Bogi

„Ég gefst ekki upp og held baráttunni áfram. Afstaða stjórnvalda í þessu máli er ranglát og ég skil ekki hvers vegna þarf leyfisveitingar og aðgerðir þótt maður úti í sveit sé sér til gamans og heimilisnota að rækta nokkrar bleikjur í stífluðum bæjarlæk,“ segir Bjarni Óskarsson á Völlum í Svarfaðardal.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið hefur staðfest þá ákvörðun Matvælastofnunar að stöðva fiskeldi á Völlum, sem ekki var starfsleyfi fyrir. Bjarni taldi sig hins vegar ekki þurfa leyfi því starfsemi sín væri smá í sniðum, að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag.

Umsókn um leyfi sendi hann þó inn seint á árinu 2018, en sakir anna var málið ekki tekið til umfjöllunar fyrr en ári síðar. Þá hófst ferlið á að senda út greiðsluseðil fyrir leyfisgjald, sem umsækjandi greiddi ekki, og því fór vinna við umsóknina aldrei af stað.

Ráðuneytið segir í úrskurði sínum ekki standast að við málsmeðferð hefði Matvælastofnun brotið rannsóknar-, meðalhófs- og jafnræðisreglu stjórnsýslulaga eins og kærandi hélt fram.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert