Borgarlínan ekki þjóðhagslega hagkvæm

Hugmynd að stoppistöð borgarlínu.
Hugmynd að stoppistöð borgarlínu.

Nýleg skýrsla Mannvits og danska ráðgjafarfyrirtækisins COWI um borgarlínuna var kynnt þannig að framkvæmdin væri þjóðhagslega hagkvæm.

Þetta segir Ragnar Árnason hagfræðiprófessor ranga túlkun, í aðsendri grein hans í blaðinu í dag.

Ragnar telur að þjóðhagslegt núvirði fyrsta áfanga borgarlínu sé verulega neikvætt. Í skýrslunni séu reiknaðir til ábata ýmsir þættir sem séu alls ekki félagslegur ábati, eins og greidd fargjöld og „eitthvert metið hrakvirði framkvæmdarinnar í miðjum klíðum eins og hið opinbera geti þá selt fjárfestinguna til útlanda fyrir reiðufé“.

Við bætist óraunsæjar forsendur um notkun borgarlínunnar, að því er fram kemur í  umfjöllun um þetta mál í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert