Óhreinsuðu skólpi ekki lengur dælt í Eyjafjörð

Hreinsistöð fráveitu í Sandgerðisbót á Akureyri.
Hreinsistöð fráveitu í Sandgerðisbót á Akureyri. mbl.is/Þorgeir

Tekin hefur verið í gagnið ný hreinsistöð fráveitu í Sandgerðisbót á Akureyri.

Í samtali við mbl.is segir Helgi Jóhannesson forstjóri Norðurorku að í þessu felist bylting fyrir umhverfið og sömuleiðis Norðurorku.

„Nú erum við loksins komin á þann stað sem við viljum vera, að uppfylla lög og reglur sem í gangi eru,“ segir Helgi.

Frá hreinsistöðinni á Akureyri.
Frá hreinsistöðinni á Akureyri. mbl.is/Þorgeir

Áður dælt 90 metrum frá ströndinni

Með nýju hreinsistöðinni er óhreinsuðu skólpi ekki lengur dælt í Eyjafjörðinn, eins og segir á vef Norðurorku. Nú er vatnið hreinsað, öll föstu efnin síuð úr skólpinu og því síðan dælt frá Akureyri, 400 metra út í strauma í Eyjafirði. Áður var vatninu dælt 90 metra frá ströndinni. 

Vatn hreinsað og föst efni síuð úr skólpinu.
Vatn hreinsað og föst efni síuð úr skólpinu. mbl.is/Þorgeir

Helgi segir enn fremur að Norðurorka sé „stolt að koma þessu í kring“ og segist vona að ríkið muni áfram styðja við sambærilegar framkvæmdir í minni sveitarfélögum.

Nánar um stöðina hér.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert