Mælaborð um aðgerðir í jafnréttismálum

Á svæði mælaborðsins er farið yfir stöðu og framvindu aðgerða …
Á svæði mælaborðsins er farið yfir stöðu og framvindu aðgerða á myndrænan hátt en hægt er að lesa nánar um stöðu hverrar aðgerðar á svæðinu. mbl.is/Kristinn Magnússon

Mælaborð um aðgerðir  í framkvæmdaáætlun í jafnréttismálum 2020-2023 er komið út á vef Stjórnarráðsins. Markmiðið með mælaborðinu er að fylgja eftir aðgerðum í framkvæmdaáætlun um jafnréttismál. Mælaborðið verður uppfært reglulega í samræmi við framgang mála og bera  öll ráðuneyti ábyrgð á tilteknum verkefnum. 

Framkvæmdaáætlun í jafnréttismálum er ætlað að skilgreina stefnu stjórnvalda á hverjum tíma og lýsa verkefnum sem ýmist er ætlað að varpa ljósi á stöðu kynjanna eða fela í sér beinar aðgerðir í þágu kynjafnréttis.

Á svæði mælaborðsins er farið yfir stöðu og framvindu aðgerða á myndrænan hátt en hægt er að lesa nánar um stöðu hverrar aðgerðar á svæðinu.

Hægt er að skoða mælaborðið hér.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert