Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra átti símafund með Scott Morrison forsætisráðherra Ástralíu í gær, m.a. um framboð Ástralíu til stöðu framkvæmdastjóra OECD. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Stjórnarráðinu.
Þá ræddu Katrín og Morison einnig um áherslur OECD m.a. í tengslum við uppbyggingu eftir COVID og mikilvægi alþjóðasamstarfs. Ráðherrarnir tveir voru sammála um að standa vörð um alþjóðasamstarf.
„Þau töluðu jafnframt um gott samstarf Íslands og Ástralíu á alþjóðavettvangi, tvíhliða samstarf landanna og möguleika þess að auka það. Fundurinn, sem var að frumkvæði Morrison, stóð í um 20 mínútur og var þetta í fyrsta sinn sem þau ræða saman,“ segir í tilkynningunni.