Þrír menn eru í gæsluvarðhaldi vegna gruns um framleiðslu á ofskynjunarefninu DMT, samkvæmt heimildum RÚV. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu framkvæmdi umfangsmikla rannsókn vegna málsins og hefur húsleit farið fram á fjölmörgum stöðum. Nokkrir eru með réttarstöðu sakbornings.
Heimildir RÚV herma að hugsanlega verði boðað til fundar bráðlega til að upplýsa um málið. Ekki er vitað til þess að framleiðsla á DMT hafi áður fundist á Íslandi.
DMT (N,N-Dímethýltryptamín) er ofskynjunarefni sem m.a. er að finna í suður-ameríska seyðinu Ayahusca sem ættbálkar í Amazon skóginum hafa notað um árabil í athöfnum.
Yfirheyrslur yfir mönnunum eru nú á byrjunarstigi. Þeir voru færðir í gæsluvarðhald seint í gærkvöldi. Einn gæsluvarðhaldsúrskurður hefur verið kærður til Landsréttar.