Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra kynnir í dag ný markmið Íslands í loftslagsmálum á sérstökum leiðtogafundi Sameinuðu þjóðanna en streymt verður frá fundinum sem hefst klukkan tvö.
Eins og fram kom í tilkynningu frá ríkisstjórninni á fimmtudag hefur verið ákveðið að stefna að 55% samdrætti í losun gróðurhúsalofttegunda fyrir 2030 í samfloti með Noregi og ESB.
Þá verða aðgerðir efldar í kolefnisbindingu og landnotkun til að ná markmiði Íslands um kolefnishlutleysi 2040 og áfangamarkmiði um kolefnishlutleysi losunar á beinni ábyrgð íslenskra stjórnvalda í kringum 2030.
Enn fremur verður áhersla á loftslagstengd þróunarverkefni aukin. Fjölmargir þjóðarleiðtogar og fulltrúar alþjóðastofnana, samtaka og viðskiptalífs ávarpa enn fremur fundinn.
Hægt er að fylgjast með fundinum hér.