„Næstu ár verða tími breytinga í byggingariðnaði“

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra og Sandra …
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra og Sandra Hlíf Ocares, verkefnastjóri Byggingavettvangsins. Ljósmynd/Stjórnarráðið

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, hefur gert samkomulag við Byggingavettvanginn um útfærslu á tillögum um langtímaaðgerðaáætlun um fyrirkomulag rannsókna, þróunar og nýsköpunar í byggingariðnaði í ljósi þess  leggja á Nýsköpunarmiðstöð Íslands niður.  

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu. 

Næstu ár verða tími breytinga í byggingariðnaði og þörfin á bættum og vel skilgreindum áherslum í nýsköpun, rannsóknum og þróun í greininni hefur því aldrei verið meiri,“ segir Þórdís Kolbrún. 

Mun Byggingavettvangurinn skila inn tillögum sínum í ársbyrjun 2021. Þar á meðal annars  koma fram hvernig tryggja megi fjármagn til málaflokksins og hvernig megi byggja upp þekkingu og færni með því  virkja rannsóknir og nýsköpun í atvinnulífi, innan skólakerfisins og hjá hinu opinbera. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert