Sjö innanlandssmit greindust

AFP

Alls greindust sjö kórónuveirusmit innanlands í gær, samkvæmt bráðabirgðatölum. Þetta staðfestir Jóhann K. Jóhannsson hjá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra. Tveir voru ekki í sóttkví.

Hægt verður að staðfesta tölurnar eftir fjóra daga þegar búið verður að vinna úr þeim.

Á landamærunum greindust 24 smit. Alls voru 1.202 sýni tekin innanlands og 1.301 á landamærunum.

Af smitunum 24 á landamærunum voru tvö virk smit í fyrri sýnatöku og níu í seinni sýnatöku. Alls er beðið mótefnamælinga í 13 tilfellum.

Jóhann hefur ekki upplýsingar um hversu margir eru á sjúkrahúsi vegna Covid-19. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert