Auðvitað sorglegt en lífsins gangur

Bóluefni við Covid-19.
Bóluefni við Covid-19. mbl.is/Kristinn Magnússon

Öllum lyfjum fylgja aukaverkanir en með klínískum rannsóknum af ýmsu tagi er reynt að þekkja og skilja þær aukaverkanir sem fylgja hverju lyfi. Það er svo hlutverk lyfjastofnana sem veita leyfi að meta hvort verkun lyfsins sé að jafnaði meiri en hættan á hugsanlegri aukaverkun. 

Þetta segir Magnús Karl Magnússon, prófessor við læknadeild Háskóla Íslands, í pistli sínum á Facebook um aukaverkanir lyfja og bóluefna. 

Lyfja­stofn­un hef­ur verið til­kynnt um fimm al­var­leg­ar auka­verk­an­ir, þar af fjög­ur and­lát, sem hugs­an­lega kunna að tengj­ast bólu­setn­ingu við SARS-CoV-2-veirunni. Í öll­um til­fell­un­um er um að ræða aldraða ein­stak­linga með und­ir­liggj­andi sjúk­dóma og sem búa á hjúkr­un­ar­heim­ilum.

Magnús Karl Magnússon læknir og prófessor.
Magnús Karl Magnússon læknir og prófessor. Ljósmynd/Háskóli Íslands

„Það er ekki alltaf auðvelt að meta hugsanlegt orsakasamband milli lyfs og aukaverkunar. Ef ég fæ höfuðverk eftir töku á lyfi þá gæti það hæglega verið tilviljun, það gæti verið raunveruleg aukaverkun lyfs eða jafnvel svokölluð „placebo“-áhrif (stundum kölluð nocebo-áhrif þegar um er að ræða aukaverkun). Þegar við gerum klínískar lyfjatilraunir áður en lyf eru samþykkt þá er einmitt lagt mat á hugsanlegar aukaverkanir og þar er til dæmis borin saman tíðni hugsanlegra aukaverkana milli hópsins sem tekur nýja lyfið og hinna sem ekki taka lyfið,“ segir Magnús í pistli sínum. 

„Eftir að lyf eru komin á markað er haldið áfram að rannsaka hugsanlegar aukaverkanir, til dæmis með skráningu þeirra hjá lyfjastofnun, með rannsóknum á gögnum í lyfjagagnagrunnum og með ýmsum öðrum leiðum. En við verðum að muna að það er erfitt að meta orsakasamband og því getur ómarkviss umræða og óskýr hugsun leitt til rangra ályktana,“ segir Magnús. 

Draga verði réttar ályktanir um orsakir og afleiðingar 

Magnús segir í sambandi við bólusetningu við kórónuveirunni að mikilvægt sé að hafa í huga að þeir einstaklingar sem látist hafa í kjölfar bólusetningar séu hrumir og flestir aldraðir. 

„Nú hefur komið upp umræða um dauðsföll eftir bólusetningar hjá íbúum hjúkrunarheimila. Auðvitað þurfum við að vera á varbergi, hugsanlegar aukaverkanir á að tilkynna, það er hluti af gæðakerfi lyfjastofnunar sem hefur samráð við aðra lyfjastofnanir um allan heim. En það að vera á varðbergi krefst þess að við reynum að afla upplýsinga og reynum síðan að draga réttar ályktanir um orsakir og afleiðingar.
Við verðum þannig að muna að íbúar hjúkrunarheimila eru hrumir og flestir aldraðir. Þar deyja allnokkrir á hverri viku. Það er auðvitað sorglegt en það er lífsins gangur. Ef 10 íbúar deyja að jafnaði á viku og við bólusetjum alla íbúana á 2-3 dögum þá munum við vænta þess að á næstu viku muni 10 íbúar deyja. Það er enn og aftur lífsins gangur. Annað væri óvenjulegt. Við skulum því bíða róleg,“ segir Magnús. 

Um aukaverkanir lyfja (og bóluefna) Ég kenni lækanemum og fleiri stéttum lyfjafræði, þar á meðal um aukaverkanir lyfja....

Posted by Magnús Karl Magnússon on Þriðjudagur, 5. janúar 2021
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert