Kjördæmisþing Vinstri grænna í Norðvesturkjördæmi samþykkti einróma á fjölmennum fundi í gærkvöldi að halda forval til að velja á framboðslista fyrir komandi alþingiskosningar 25. september.
Steinunn Rósa Guðmundsdóttir var endurkjörin formaður kjördæmisráðsins og kosin var kjörstjórn til að sjá um framkvæmd og skipulag forvalsins. Það er bindandi í efstu þrjú sætin, en í samræmi við reglur hreyfingarinnar um að ekki megi halla á konur, að því er segir í tilkynningu.
Vinstri græn í Norðvesturkjördæmi eru fimmta kjördæmisráð hreyfingarinnar sem velur forval og þar með er ljóst að forval VG fer fram í öllum kjördæmum.
Í fundarlok minntust Lilja Rafney Magnúsdóttir, þingmaður Norðvesturkjördæmis, og aðrir fundarmenn Svavars Gestssonar, fyrrverandi ráðherra og alþingismanns, sem lést aðfaranótt átjánda janúar, en Svavar á sterkar rætur í kjördæminu.
Stjórn kjördæmisráðs lagði til fimm manna kjörstjórn til að annast framkvæmd forvals og undirbúning þess og leggja tillögu um framboðslista fyrir kjördæmisráð. Í kjörstjórn voru kosin þau Bjarki Þór Grönfeldt, Björg Baldursdóttir, Jóhanna Magnúsdóttir, Sigríður Júlía Brynleifsdóttir og Þóra Magnea Magnúsdóttir.