Áfram austanstrekkingur

Kort/Veðurstofa Íslands

Austlæg átt, víða strekkingur í dag, allhvöss eða hvöss syðst og á Vestfjörðum en mun hægari austanlands. Bjart með köflum, en stöku él úti við sjávarsíðuna. Heldur hægari á morgun og léttir víða til.

„Á föstudag nálgast lægðardrag vesturhelming landsins og fer að snjóa þar um kvöldið en austan- og norðaustanáttir með slyddu eða snjókomu í flestum landshlutum um helgina. Frostlaust með suður- og vesturströndinni, en annars talsvert frost, einkum í innsveitum nyrðra,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands.

Veðurhorfur í dag og næstu daga

Austan og norðaustan 10-18 m/s, hægari norðlæg átt A-lands. Dálítil él á N-verðu landinu, en annars bjart með köflum. Austlæg átt, 8-15 m/s eftir hádegi en allt að 18 m/s syðst og á Vestfjörðum. Mun hægari vindur eystra. Birtir víða til síðdegis en stöku él við sjávarsíðuna.
Austan 8-15 m/s og víða léttskýjað á morgun, hvassast syðst en skýjað úti við N- og A-ströndina. Frost 1 til 15 stig, kaldast í innsveitum fyrir norðan.

Á fimmtudag:
Austan 8-15 m/s S-til á landinu, hvassast með ströndinni, en annars hæg breytileg átt. Yfirleitt bjartviðri, en skýjað með A-ströndinni og frost 0 til 10 stig, minnst syðst.

Á föstudag:
Suðaustan 8-15 m/s SV-til, lítils háttar slydda og hiti kringum frostmark, en annars hægir vindar, bjartviðri og talsvert frost. Gengur í norðaustanstrekking og fer að snjóa NV-til um kvöldið.

Á laugardag:
Fremur hæg suðlæg átt, lítils háttar rigning eða slydda á víð og dreif og hiti kringum frostmark, en ákveðin norðan- og norðaustanátt með snjókomu og vægu frost NV-lands.

Á sunnudag:
Austan- og norðaustanátt með slyddu eða rigningu og frostleysi syðst á landinu en annars hægir vindar, stöku él og vægt frost.

Á mánudag og þriðjudag:
Útlit fyrir suðaustan- og austanáttir með rigningu víða um land en þurrviðri fyrir norðan og hlýnandi veður.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert