Tíu í framboði hjá Framsókn í Norðvestur

Kosið er um fimm efstu sætin á lista.
Kosið er um fimm efstu sætin á lista. mbl.is/Styrmir Kári

Alls eru tíu manns í framboði til póstkosningu Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi fyrir þingkosningar í haust.

Póstkosning Framsóknar í Norðvesturkjördæmi verður haldin dagana 16. febrúar til 13. mars og kosið verður um fimm efstu sæti á lista flokksins.

Í framboði eru eftirfarandi:

  • Stefán Vagn Stefánsson, forseti sveitarstjórnar í Skagafirði í 1. sæti
  • Guðveig Eyglóardóttir, sveitarstjórnarmaður í Borgarbyggð í 1.-2. sæti
  • Halla Signý Kristjánsdóttir, alþingismaður í Bolungarvík í 1.-2. sæti
  • Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir, formaður SUF í 2. sæti
  • Iða Marsibil Jónsdóttir, forseti bæjarstjórnar í Vesturbyggð í 2.-3. sæti
  • Gunnar Tryggvi Halldórsson, sveitarstjórnarmaður Blönduósi í 3. sæti
  • Friðrik Már Sigurðsson, verkefnastjóri og sveitarstjórnarfulltrúi, Húnaþingi vestra í 3.-4.sæti
  • Gunnar Ásgrímsson, háskólanemi á Sauðárkróki í 5. sæti
  • Ragnheiður Ingimundardóttir, verslunarmaður í Strandabyggð í 5.-6. sæti
  • Tryggvi Gunnarsson, skipsstjóri frá Flatey í 3.-5. sæti
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert