Mótmæltu við rússneska sendiráðið

Frá mótmælunum við rússneska sendiráðið í dag.
Frá mótmælunum við rússneska sendiráðið í dag. mbl.is/Sigurður Ragnarsson

Mótmælendur söfnuðust saman fyrir utan rússneska sendiráðið klukkan tvö í dag og mótmæltu brotum á mannréttindum og málfrelsi í Rússlandi. Töluverður fjöldi fólks var þar samankominn þegar ljósmyndari mbl.is kom við.

Tilefni mótmælanna var m.a. handtaka stjórnarandstæðingsins Alexeis Navalnís og fangelsisdómur sem hann hlaut. 

Á mótmælunum var tafarlausrar lausnar Navalnís og annarra pólitískra fanga krafist en mótmæli af svipuðum toga áttu sér stað samtímis víða um heim. 

Rússar sem búsettir eru hérlendis mynduðu stærstan hluta mótmælendanna.
Rússar sem búsettir eru hérlendis mynduðu stærstan hluta mótmælendanna. mbl.is/Sigurður Ragnarsson
Frá mótmælunum.
Frá mótmælunum. mbl.is/Sigurður Ragnarsson
mbl.is/Sigurður Ragnarsson
mbl.is/Sigurður Ragnarsson
mbl.is/Sigurður Ragnarsson
mbl.is/Sigurður Ragnarsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert