Óli leiðir VG í Norðausturkjördæmi

Óli Halldórsson.
Óli Halldórsson. Ljósmynd/Aðsend

Rafrænt forval fór fram hjá Vinstri hreyfingunni – grænu framboði í Norðausturkjördæmi dagana 13.-15. febrúar. Valið var í efstu fimm sæti á framboðslista hreyfingarinnar í alþingiskosningunum sem fram fara í haust. 

Niðurstaða forvalsins er eftirfarandi:

  1. Óli Halldórsson með 304 atkvæði í 1. sæti
  2. Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir með 293 atkvæði í 1.-2. sætið
  3. Jódís Skúladóttir með 297 atkvæði í 1.-3. sæti
  4. Kári Gautason með 337 atkvæði í 1.-4. sæti
  5. Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir með 322 atkvæði í 1.-5. sæti

Tólf voru í framboði og 1.042 voru á kjörskrá. Atkvæði greiddu 648 og var kosningaþáttaka 62%. Auðir seðlar og ógildir voru 0.

Kjörstjórn leggur fram lista með 20 frambjóðendum fyrir kjördæmisþing til samþykktar í samræmi við lög og stefnu hreyfingarinnar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka