Íbúðaverð hækkar enn á höfuðborgarsvæðinu

Frá Kópavogi.
Frá Kópavogi. mbl.is

Vísitala söluverðs á höfuðborgarsvæðinu samkvæmt Þjóðskrá hækkaði um 0,1% milli mánaða og er 6 mánaða hækkunin 4,3% og 12 mánaða hækkunin 7,3%.

Söluverð hefur hækkað nokkuð skarpt frá því í apríl en mikið líf færðist í fasteignamarkaðinn í vor eftir fyrra samkomubannið vegna kórónaveirunnar, að því er kemur fram á vef Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar.

Síðan þá hefur fasteignaverð hækkað töluvert eða um 6,6%. Mesta hækkunin á höfuðborgarsvæðinu hefur verið á sérbýli eða 7,8% á meðan fjölbýli hefur hækkað um 6,8%.

Frá því í maí 2017 hefur hækkun rauníbúðaverðs verið nokkuð hófleg eða um 7,7% á tæplega fjórum árum sem gerir um 2,0% á ári að jafnaði.

Nú er íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu um 8,8% hærra en þegar það náði hámarki á haustmánuðum 2007. Verð á sérbýli er rétt undir því sem það var þá.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert