Suðlæg átt í dag, víða 8-13 m/s og rigning eða skúrir og talsverð rigning á Suðausturlandi en úrkomulítið um landið norðaustanvert. Það hefur hlýnað ört í nótt en í dag verður hiti yfirleitt á bilinu 4 til 11 stig.
„Það bætir í vind í kvöld, og á morgun verður allhvöss sunnan- og suðvestanátt og áfram vætusamt og milt veður en víða bjartviðri á Austurlandi.
Það kólnar annað kvöld, og á sunnudag er svo útlit fyrir suðvestanhvassviðri og éljagang um landið sunnan- og vestanvert,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands.
Á laugardag:
Suðlæg átt 13-20 m/s og rigning, sums staðar talsverð úrkoma, en þurrt að kalla NA-til. Hiti 4 til 12 stig. Vestlægari um kvöldið með skúrum eða éljum og kólnandi veðri.
Á sunnudag:
Suðvestanhvassviðri og éljagangur, en léttskýjað A-lands. Hiti um eða yfir frostmarki. Dregur úr vindi um kvöldið.
Á mánudag:
Suðvestan 5-13 og lítils háttar skúrir eða él, en bjartviðri um landið A-vert. Hiti breytist lítið.
Á þriðjudag:
Austlæg átt og skúrir, en yfirleitt þurrt N- og A-lands. Hiti 0 til 6 stig.
Á miðvikudag:
Suðaustanátt og skúrir eða él. Frost 0 til 5 stig, en áfram milt um landið V-vert.
Á fimmtudag:
Útlit fyrir suðlæga átt með dálítilli vætu S- og V-lands. Hlýnandi veður.