Laus úr varðhaldi en úrskurðaður í farbann

Viðkomandi hafði setið í gæsluvarðhaldi undanfarinn hálfan mánuð og rann …
Viðkomandi hafði setið í gæsluvarðhaldi undanfarinn hálfan mánuð og rann það út í dag, þriðjudag, en ekki var lögð fram krafa um áframhaldandi gæsluvarðhald. mbl.is/Íris Jóhannsdóttir

Einn var í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur úrskurðaður í fjögurra vikna farbann, eða til þriðjudagsins 30. mars, á grundvelli rannsóknarhagsmuna að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í þágu rannsóknar hennar á manndrápi í austurborginni í síðasta mánuði.

Viðkomandi hafði setið í gæsluvarðhaldi undanfarinn hálfan mánuð og rann það út í dag, þriðjudag, en ekki var lögð fram krafa um áframhaldandi gæsluvarðhald.

Fimm eru enn í gæsluvarðhaldi í þágu rannsóknarinnar og fjórir hafa verið úrskurðaðir í farbann.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert