Landsréttur samþykkir beiðni Þóru

Þóra Einarsdóttir óperusöngkona.
Þóra Einarsdóttir óperusöngkona. mbl.is/Golli

Landsréttur samþykkti nú fyrir helgi beiðni Þóru Einarsdóttur óperusöngkonu um leyfi til að áfrýja dómi Héraðsdóms Reykjavíkur í máli hennar gegn Íslensku óperunni. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Þóru.

„Þar sem krafa mín náði ekki lágmarks áfrýjunarfjárhæð þurfti Landsréttur að taka tillit til annarra skilyrða varðandi áfrýjunarleyfi. En Landsréttur getur veitt slíkt leyfi ef úrslit málsins hafa verulegt almennt gildi eða varða mikilvæga hagsmuni eða ef ekki er útilokað samkvæmt fyrirliggjandi gögnum að dómi kunni að verða breytt svo að einhverju nemi,“ segir í tilkynningu.

Forsaga þessa máls eru deilur sem risu á milli óperustjóra Íslensku óperunnar og söngvara í sýningunni Brúðkaup Fígarós sem sýnd var á haustmánuðum 2019. Söngvarar sýningarinnar reiddu sig á að kjarasamningur stéttarfélags þeirra við Íslensku óperuna tryggði starfsumhverfi þeirra, vinnutíma og launakjör. Óperustjóri hélt því hins vegar fram að kjarasamningur Félags íslenskra hljómlistarmanna gilti ekki um ráðningarsamninga söngvaranna.

„Ég fagna því að Landsréttur meti það svo að skilyrði séu fyrir veitingu áfrýjunarleyfis í því skyni að fá dóm héraðsdóms frá 8. janúar 2021 endurskoðaðan. Mikilvægir hagsmunir eru í húfi fyrir söngvara auk þess sem málið hefur fordæmisgildi fyrir aðra listamenn og íslenskan vinnumarkað í heild sinni.

Lögmaður minn er Gunnar Ingi Jóhannsson hrl. og fer hann með málið fyrir mína hönd. Lára V. Júlíusdóttir, sérfræðingur í vinnurétti, veitti ráðgjöf og studdi umsókn mína um leyfi til áfrýjunar með yfirlýsingu um brýnt tilefni til að áfrýja dómi héraðsdóms. Stéttarfélag mitt, Félag íslenskra hljómlistarmanna, Bandalag íslenskra listamanna, Félag íslenskra leikara og Fagfélag klassískra söngvara studdu áfrýjunarbeiðnina.

Það er grundvallarregla á Íslandi að kjarasamningar sem stéttarfélög hafa gert við stofnanir um lágmarkskjör séu virtir. Sú regla hefur verið óumdeild á íslenskum vinnumarkaði í tugi ára. Óhjákvæmilegt er að fá úr því skorið fyrir æðri dómstól hvort þessi réttur sé enn til staðar eða hvort hann hafi verið afnuminn,“ segir enn fremur í tilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert