Skráargat í bráðnandi jökli

Guðjón Þorsteinn Guðmundsson með ferðamenn á leið í íshellinn.
Guðjón Þorsteinn Guðmundsson með ferðamenn á leið í íshellinn. mbl.is/Sigurður Bogi

 Íshellir í Kötlujökli, sem liggur frá Mýrdalsjökli norðan við fjallið Hafursey, hefur að undanförnu komið sterkur inn sem vinsæll viðkomustaður ferðafólks sem fer á þennan stað í skipulögðum ferðum. Leiðin að jöklinum er vandrötuð, því þar geta leynst krapapyttir, svelgir og fleiri hættur. Er því ekki á færi nema þeirra sem þekkja til aðstæðna.

Djúpar sprungur og hvilftir

Jöklulbrúnin, frá jafnsléttu upp á fannbreiðu, snýr mót suðri og er á að giska 100 metra há; belti með djúpum sprungum og sandi orpnum hvilftum. Í hinum háa jökulvegg er munni íshellisins áberandi; og í svip og lögun líkur skráargati. Hér ætti líka enginn að fara nema í fylgd þeirra sem í óeiginlegri merkingu hafa „lykla“ að hellinum og einn þeirra er Guðjón Þorsteinn Guðmundsson, sem rekur ferðaþjónustufyrirtækið Katlatrack. Morgunblaðið slóst í för með honum um síðastliðna helgi og kannaði aðstæður á svæðinu.

Jökullinn er sprunginn og hrikalegur og hér sést muni hans …
Jökullinn er sprunginn og hrikalegur og hér sést muni hans blasa við. Fjallgöngufólk sést príla í jöklinum hægra megin við munann og á því má glöggva sig á hlutföllum og stærðum á svæðinu. mbl.is/Sigurður Bogi

„Jökullinn breytist hratt og slíkt gerir ferðir á þessar slóðir spennandi. Náttúra landsins fær sífellt nýjan svip og sú framvinda verður sífellt hraðari,“ segir Guðjón Þorsteinn. „Ég byrjaði með skipulagðar ferðir að Kötlujökli árið 2009 og mér telst svo til að síðan þá hafi umhverfi og útlit þessa staðar gjörbreyst að minnsta kosti sjö sinnum. Sprungur horfið og nýjar myndast, hvelfingar orðið að skútum og loks hellum, sem svo bráðna niður. Íshellar eins og sá sem hér segir frá, hafa að jafnaði eins og hálfs árs líftíma. Þannig rýrnar Kötlujökull um að jafnaði 25 metra á ári og eðlilega gefur margt því eftir.“

Kvikmyndaver í fjallasalnum

Frá hinum víðfeðma Mýrdalsjökli ganga nokkrir skriðjöklar. Kötlujökull, sem er beint niður af gíg og sigkatli Kötlueldstöðvarinnar, er einn þeirra og gengur til suðausturs.

Kötlujökull er umlukinn fjöllum í næsta stórbrotnu umhverfi, þar sem auðvelt er að gefa ímyndunaraflinu lausan tauminn. Slíkt hafa kvikmyndagerðarmenn líka gert, en í fjallasalnum að baki Hafursey hafa verið teknar senur í minnst þrjár bíómyndir; það er Syndaflóðssagan Noah með Russel Crove í aðalhlutverki og Transformers með stórleikurunum Mark Wahlberg og Stanley Tucci sem báðar komu út 2014. Myndin Star Wars Rogue One var svo tekin að hluta til í þessu umhverfi og frumsýnd 2017.

Fyrirtækin sem gera út ferðir að Kötlujökli eru nokkur. Eitt þeirra er Katlatrack sem Guðjón og Sæunn Elsa Sigurðardóttir, kona hans, reka. „Fyrstu árin voru erlendir ferðamenn þeir sem helst fóru með okkur að jöklinum. Nú sjást þeir ekki á landinu en þeirra í stað hafa Íslendingar komið; fólk sem til dæmis fer í helgarferðir til Víkur með áhugaverðri afþreyingu,“ segir Guðjón sem ekur farþegum sínum frá Vík í Mýrdal á áfangastað, en frá bílastæði að jökulsporði er ekki langur spotti.

Krókur var festur í ísinn og strengur festur við. Gripið …
Krókur var festur í ísinn og strengur festur við. Gripið 100% og Gunnar Bragi Þorsteinsson fór á flug. mbl.is/Sigurður Bogi

Mikil hvefling

Munni íshellisins í Kötlujökli er, skv. lauslegri áætlun, um 20 metra hár og 10 metra breiður. Þegar inn í gáttina er komið tekur við mikil hvelfing þar sem lækur með leysingavatni streymir fram. Miklir malarbingir eru í hellinum og er gengið upp og niður þá hrauka – og þegar inn í botn kemur er stórt gat þar sem sést upp í jökulbrú og háan himin. Alls öryggis er gætt í hellinum, þar eru brýr og markaðir stígar og öllum sem á staðinn koma gert að vera með hjálma og brodda á skóm. Þannig er öryggi ferðamanna tryggt.

Jökulhellirinn er stórbrotinn

„Mér fannst stórkostleg upplifun að koma í íshellinn og sjá þá miklu krafta náttúrunnar sem þarna eru. Hellirinn er stórbrotinn í allri sinni gerð,“ segir Gunnar Bragi Þorsteinsson, framkvæmdastjóri á Selfossi, sem var á svæðinu með góðum hópi um sl. helgi. Hann segir ferðina hafa verið sérlega vel skipulagða og mikill fengur hafi verið í fróðlegum lýsingum leiðsögumanns.

„Gripið í ísnum er afar sterkt og alveg magnað að krókur skrúfaður í ísvegginn skuli halda halda manni sem er í línu á festingunni. Svo vekur heimsókn á svona stað fólk líka til þess að velta umhverfismálum fyrir sér; að íshellar bráðni og hverfi á aðeins fáum misserum. Þar ræður auðvitað hlýnun andrúmsloftsins, málefni og veruleiki sem við þurfum að gefa meiri gaum,“ segir Gunnar Bragi.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert