Hraunbreiðurnar ná nú saman

Hér má sjá hruanbreiðurnar tengjast.
Hér má sjá hruanbreiðurnar tengjast. Ljósmynd/Veðurstofa Íslands

Á myndum sem voru teknar í könnunarflugi nú síðdegis má sjá að hraunbreiðurnar úr gosopunum þremur á Reykjanesskaga ná nú saman. Þetta kemur fram í facebookfærslu Veðurstofunnar.

„Hraun frá þriðja gosstaðnum sem opnaðist á miðnætti hefur runnið bæði til suðurs niður í Geldingadali og í norðaustur í áttina að gosopinu ofan við Meradali. Samfeld hraunbreiða er því á milli gosstaðanna þriggja sem í raun tilheyra einni og sömu gossprungunni yfir kvikuganginum við Fagradalsfjall,“ segir í færslunni. 

Kort/Veðurstofa Íslands
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert