Allt að 40 m/s

Kort/Veðurstofa Íslands

Spáð er norðan- og norðvestanhvassviðri eða -stormi á Suðausturlandi og Austfjörðum í dag með hviðum allt að 40 m/s. Sand- og grjótfok líklegt svo ferðalangar eru hvattir til að sýna aðgát og fólk að tryggja lausamuni.

Lægðin og snjókomubakkinn sem henni fylgdi er á leiðinni austur og fjarlægist landið en skilur eftir hjá okkur norðanstrekking eða allhvassan vind en á Suðausturlandi og á Austfjörðum verður norðvestanhvassviðri eða -stormur að því er segir í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands.

„Eftir ofankomu næturinnar verður víða bjartviðri eða léttskýjað en þó verða nokkur él norðaustan- og austanlands fram á kvöld. Í nótt lægir vestan til en áfram verður nokkur strengur austast á morgun,“ segir enn fremur en gular viðvaranir hafa verið í gildi á Vestfjörðum og við Breiðafjörð og gilda til klukkan 7. Síðar í dag taka við gular viðvaranir á Suðausturlandi og Austfjörðum.

Veðurhorfur í dag og næstu daga

Norðlæg átt 10-15 m/s en gengur í norðvestan 18-25 á Suðausturlandi og Austfjörðum eftir hádegi. Él norðaustan- og austanlands fram á kvöld en bjartviðri sunnan heiða.
Lægir vestan til í nótt, breytileg átt 3-10 á morgun en norðvestan 13-20 austast. Él um landið norðan- og vestanvert en annars léttskýjað. Frost 0 til 8 stig.

Á föstudag:

Norðvestan og vestan 5-10 m/s en 10-18 austast fram eftir degi. Víða léttskýjað en stöku él við vesturströndina. Frost 0 til 7 stig að deginum.

Á laugardag:
Suðvestan 5-10 m/s. Dálítil snjókoma eða rigning um landið vestanvert með hita um eða yfir frostmarki en bjartviðri austan til og frost 0 til 6 stig.

Á sunnudag:
Austlæg eða breytileg átt og slydda eða snjókoma sunnan- og vestanlands en annars él. Hiti um frostmark.

Á mánudag:
Fremur hæg norðaustlæg átt og léttskýjað en él með norður- og austurströndinni. Hiti 0 til 6 stig að deginum.

Á þriðjudag:
Norðaustanátt með snjókomu en þurrt að kalla suðvestan til. Heldur kólnandi.

Á miðvikudag:
Útlit fyrir norðanátt með snjókomu eða éljum um landið norðanvert en björtu veðri syðra. Kalt í veðri.

Gul viðvörun tekur gildi á Austfjörðum klukkan 15 og gildir til klukkan 9 í fyrramálið, föstudag. „Norðvestanhvassviðri eða -stormur, 18-25 m/s. Mjög snarpar vindhviður, allt að 40 m/s. Fólk er hvatt til að sýna aðgát á ferðalögum og tryggja lausamuni.“

Á Suðausturlandi tekur gul viðvörun gildi á hádegi og gildir hún til klukkan 10 í fyrramálið. „Norðanhvassviðri eða -stormur austan Öræfa, 18-28 m/s með hviðum allt að 40 m/s. Sand- og grjótfok líklegt svo ferðalangar eru hvattir til að sýna aðgát og fólk að tryggja lausamuni.“
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert