Gunnari Jóhanni sleppt úr haldi

Áfrýjunardómstóll féllst á að láta Gunnar Jóhann lausan þar til …
Áfrýjunardómstóll féllst á að láta Gunnar Jóhann lausan þar til ljóst verður hvort mál hans verði tekið fyrir í Hæstarétti. mbl.is/Atli Steinn Guðmundsson

Gunnari Jóhanni Gunnarssyni hefur verið sleppt úr haldi þar til ljóst verður hvort mál hans verði tekið fyrir í Hæstarétti. Hann hefur verið dæmdur fyrir morðið á hálfbróður sínum, Gísla Þór Þórarinssyni.

Gunnar hlaut 13 ára fangelsisdóm fyrir að ráða hálfbróður sínum bana með haglaskoti að morgni 27. apríl 2019 en áfrýjunardómstóll í Noregi mildaði dóminn í fimm ár snemma í mars síðastliðnum.

Verjandi Gunnars fór fram á að honum yrði sleppt úr haldi þar til málið yrði tekið fyrir í Hæstarétti en lögreglan fór fram á að hann yrði áfram í haldi, sem héraðsdómstóll féllst á. Þeim úrskurði var áfrýjað eins og dóminum og hefur áfrýjunardómstólll fallist á kröfu verjanda Gunnars.

Ekki ætlað að ráða bróður sínum bana

Verj­end­ur Gunn­ars sögðu fyr­ir rétti að Gunn­ar hefði ekki ætlað að ráða bróður sín­um bana held­ur hafi skot hlaupið af hagla­byssu, sem Gunn­ar hafði meðferðis, í læri Gísla Þórs þegar þeir tók­ust á um vopnið.

Aft­ur á móti hélt sak­sókn­ari því fram að um vilja­verk hefði verið að ræða en Gunn­ar hafði ít­rekað hótað því að drepa hálfbróður sinn. Hann fór fram á að refs­ing héraðsdóms yrði staðfest. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert