Mesta skjálftavirknin norðarlega í kvikuganginum

Enn rennur hraun um Geldingadali.
Enn rennur hraun um Geldingadali. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Búast má við að hraun renni úr skarðinu í suðausturhluta Geldingadala á næstunni. Áfram er skjálftavirknin við gosið mest norðarlega í kvikuganginum, það er við Litla-Hrút og að Keili. Lítil aflögun mælist á þessu svæði.

Frá þessu greina almannavarnir í tilkynningu, en vísindaráð þeirra kom saman til fundar fyrr í dag. Farið var yfir skjálftagögn og mælingar á aflögun, framgang gossins, dreifingu hrauns, framleiðslu gosefna og þá mengun sem fylgir eldgosinu.

Afar lítil merki

„Síðustu vikuna hafa opnast nýir gígar á sprungunni á milli Geldingadala og þess gígs sem opnaðist annan í páskum. Þetta hefur haft áhrif á hvert hraun rennur og bunkast nú upp hraun í SA-hluta Geldingadala og má búast við að það renni úr skarðinu sem þar er á næstunni,“ segir í tilkynningu.

„Rætt var um hvort hægt væri að sjá fyrir þegar nýjar opnanir verða á sprungunni innan eldgosasvæðisins, en merkin eru afar lítil og erfitt að mæla þau með þeim hætti að hægt verði að vara við með mikilli vissu og fyrirvara.

Hraunflæði hefur verið nokkuð stöðugt frá upphafi goss, þótt hægt sé að greina litlar sveiflur inn á milli. Ekkert bendir til þess að sjái fyrir endann á gosinu. Gosmengun er mest við gosstöðvarnar og dvínar hratt með aukinni fjarlægð frá þeim.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert